- Lista upp fyrir fjárfestana allar þær ástæður sem þú getur fundið út til að hugmyndin þín gæti klikkað. Ekki láta fjárfestinn reka þig á gat.
- Einn besti staður markaðar til að rannsaka er á útmörkum markaðar, t.d. þar sem þeir sem minnst hafa á milli handanna eru. Neðsta sem fyrirtæki getur teygt sig niður í?
- Ef þú sérð vandamál, þá er svarið bara eitt af tveimur. 1. Ég ætla ekki að leysa það, eða 2. Ég ætla að leysa það. Það er ekki til eitthvað sem heitir óleysanlegt verkefni.
- Nýsköpunar stakkurinn er aldrei eitthvað eitt atriði, heldur stafli, sem staflast saman í eina heild sem er ómögulegt að herma, tölfræðilega því sem næst ómögulegt.
- Það þarf enga háskólagráðu til að láta nýsköpun heppnast, eða mikla þekkingu á tilteknu sérsviði. En það þarf mikinn drifkraft, endalausan drifkraft, margar tilraunir og oftar en ekki að gera það sem í fyrstu lítur út fyrir að vera lang best fyrir starfsmenn og/eða viðskiptavini, frekar heldur en félagið sjálft, sbr. Ingvar Kamrad (IKEA), Amadeo P. Giannini (Bank of Italy ⇒ Bank of America), Herb Kellaher (South West Airlines) etc.
- Það er hægt að fara inn á markað sem er ekki til með nýsköpun að vopni, í raun búa til markað sem var ekki til!
- Svarið liggur nær alltaf í ítrun. Að lesa sig frá laufi til laufs, yfir á grein, yfir á stofn!
- Rétta tímasetningu er vonlaust að finna. Svarið við hvenær, er samt sem áður yfirleitt STRAX. Ef þú sérð vandamál, er mjög líklegt að fleiri séu byrjaðir að reyna að leysa það og þú gætir orðið of sein(n).
- Þó frumkvöðla sé að finna ný svör, þá er flest svör að finna í því að herma eftir öðrum, í stóru sem smáu.