<aside> 💡 Í tengslum við átaksverkefni Vertonet um að fjölga konum og kvárum í upplýsingatæknigeiranum á Íslandi ætlum við að smíða saman Playbook Vertonet, leiðarvísi að fjölbreytileika, jafnræði og inngildingu á vinnustað.
</aside>
(english below)
Hvað er Playbook Vertonet:
Leiðarvísirinn er í smíðum og verður ókeypis og galopið verkfæri til að auðvelda fyrirtækjum og stjórnendum í upplýsingatækni að stíga markviss skref í átt að inngildandi vinnustaðamenningu. Við trúum því að inngildandi vinnustaðamenning auki líkur á að stelpur, konur og kvár líti á upplýsingatækni sem fýsilegan kost fyrir sig, og endist lengur í geiranum.
Hvað mun Playbook Vertonet innihalda:
Þetta verður hagnýtt verkfæri fyrir fólk sem vill stuðla að jafnrétti, fjölbreytileika og inngildingu á sínum vinnustað - stútfullt af góðum ráðum og reynslusögum. Playbook Vertonet er kaflaskipt eftir ferðalagi starfsfólks eða “employee journey”, frá ráðningu að starfslokum. Hver kafli er eins uppbyggður og mun innihalda góð ráð, tékklista, mælikvarða, reynslusögur og hlekki í rannsóknir, fleiri verkfæri og ítarefni. Beinagrindin er til, nú setjum við kjöt á beinin saman!
Hvað er Playbook Vertonet EKKI: Þetta verður seint algjörlega tæmandi listi og skotheld uppskrift að inngildingu fyrir öll. Til að byrja með verður fókusinn á sérhæft markmið átaksverkefnis Vertonet: Að fjölga konum í upplýsingatækni. Með það fyrir augum verður einblínt sérstaklega á kynjavinkilinn, en aðrir vinklar eru velkomnir - og nauðsynlegir - og verður þeim markvisst bætt við í næstu ítrun, enda lykillinn að góðri vinnustaðamenningu að hún sé inngildandi fyrir ólíka hópa.
Hvað á ég að gera?
Þú getur verið með í streyminu allan tímann, eða rekið inn nefið þegar þér hentar og tekið þátt í stutta stund. Þú mátt henda inn pælingum, texta, sniðmátum sem þú vilt deila og allskonar hlekkjum. Þú þarft EKKI að hafa áhyggjur af að fínpússa. Það verður gert í kjölfarið. Aðaláherslan í þessari rafrænu “buildathoni” er að safna inputti frá sem allra flestum, bæði fólki með reynslu af því að vinna í upplýsingatækni og líka sérfræðingum í mannauðsmálum, jafnréttismálum og inngildingu.
Playbook Vertonet verður öflugara verkfæri eftir því sem fleiri taka þátt í smíðinni - láttu endilega orðið berast og deildu þessum viðburði á öll áhugasöm!
What is the Vertonet Playbook?
The guide is currently under construction and will be a free and easy-to-use tool to help tech companies and managers take targeted steps towards an inclusive workplace culture. We believe that an inclusive workplace culture increases the likelihood that girls, women and non-binary folk will see tech as a viable option for them, and last longer in the sector.
What will the Vertonet Playbook include?
It will be a practical tool for people who want to promote diversity, equity and inclusion in their workplace; it will be full of good advice and shared experiences. The Vertonet Playbook is divided into sections along to the employee lifecycle, from recruitment to retirement. Each chapter is structured the same and will include tips, checklists, metrics, case studies and links to research, additional tools and additional content. The skeleton is there, now we put meat on the bones together!